Sælar !
Síðastliðinn föstudag var lokaball í skólanum en einnig var það
grímuball, við jónas vorum þeir einu úr hópnum sem mættu og við
skemmtum okkur konunglega sem gæslumenn
mikið að ske á þessu
balli og er talað um að 10 stelpur hafi farið að gráta, 2 gaurar
hafi nefbrotnað, 1 hafi rifbeinsbrotnað og að einn hafi endað uppá
sjúkrahúsi
Róa sig aðeins á búsinu kannski 
Á laugardaginn var partý á vegum samfylgingarinnar haldið í
glitnishúsinu, ég mætti ekki þannig að ég get ekkert sagt hvað
skeði þar og hvað ekki
í staðinn kíkti ég aðeins á mörkina en
var aðallega lærandi, maður er nú svo duglegur 
Núna eru að hellast yfir alla próf, ég fer reyndar bara í 2 próf

En allavega treysti ég mér ekki í lengra blogg, fer þá bara að
tala í hringi.

Einhverjir verða að hafa stjórn á þessu fulla og leiðinlega liði
